-Auðvitað var það Dr. Valtýr sem skrifaði bréfið-
Þegar þessar línur eru ritaðar er ég um það bil farinn að sjá til lands í verkefnavinnu í skólanum. Er búinn að vera með verkefni í heimildafræði á heilanum síðustu daga og var það farið að ganga svo langt að í nótt var mig farið að dreyma viðfangsefnið og einhver nöfn á dönskum embættismönnum sem allt meikaði sens í draumnum en reyndist svo bara vera eitthvað bull þegar ég vaknaði (Frisk og Andersen komu þessu máli ekkert við).
Þarf að láta einhvern sérfræðing fá draumana mína í hendurnar, þetta er orðið mjög undarlegt allt saman.
Ætla ekki að minnast orði á leikinn sem háður var á sunnudaginn nema að sjaldan hefur verið eins mikil ástæða til að hrópa EEEEEMIIIIIL!!!!!! Með fullri virðingu fyrir Emile Heskey sem fótboltamanni þá getur hann ekki skít í fótbolta, og það háir honum talsvert við atvinnu sína.
Fleira var það ekki í kvöld.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home