föstudagur, nóvember 07, 2003

-Jazzhátíð-
Í kvöld er stefnan sett á tónleika á Nasa hvar Ómar Guðjónsson ætlar að flytja lög af sinni fyrstu sólóplötu ásamt góðum hópi manna. Verða væntanlega eðal tónleikar. Mig langar að sjá fullt af öðrum tónleikum á Jazzhátíðinni en miðaverðið er anzi fráhrindandi fyrir fátækan námsmann.

Talandi um fátækan námsmann þá fór ég í Kringluna áðan og festi kaup á nýja safndisknum frá Ar Í Emm, eða REM eins og hún er oft kölluð. Ég á reyndar öll þessi Best of lög en á seinni disknum (þeir eru sko tveir í pakkanum) er allskonar aukaefni, demó upptökur, lög í breyttum útsetningum og tónleikaútgáfur og slíkt sem er vissulega mikill fengur að. Hlakka mikið til að kíkja á þetta dót.
Reyndar verð ég að lýsa yfir vonbrigðum mínum með hvað söfnunin mín hefur gengið illa. Ekki ein einasta króna hefur skilað sér inn á reikninginn minn og ef fram heldur sem horfir mun ekki safnast nógu mikill peningur til að ég geti keypt alla þá diska sem mig langar í.......og er það miður.

Að lokum langar mig að geta þess að á þessu ári eru liðin þrjúhundruð ár frá manntali þeirra Árna Magnússonar og Páls Vídalín en því verður einmitt fagnað með málþingi þann 14. nóvember. Eins og einn kennarinn minn sagði: "Ég hvet alla til að mæta, það kemur útlendingur." Svona viðburðir fá enga vigt fyrr en útlendingur kemur að málinu.
Að auki eru í ár liðin 40 ár frá því Bítlarnir gáfu út sína fyrstu plötu sem bar nafnið Please please me og markaði upphafið að æði því er kallað hefur verið Bítlaæðið.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com