-Upprúllun-
Í tíma í aðferðafræði í dag fékk ég úrlausn úr svokölluðu handbókaverkefni sem ég gerði snemma í september. Til að gera langa sögu stutta þá rúllaði ég þessu verkefni upp, fékk fullt hús stiga....og bara eina litla athugasemd við svar sem var samt sem áður hárrétt. Húrra fyrir pylsugerðarmanninum (Pylsugerðarmaðurinn=Sverrir)!!!
Hef ekkert bloggað um föstudaginn síðasta og skal bætt úr því hér og nú.
Strax eftir vinnu á föstudeginum fór ég ásamt vinnufélögum mínum í eitthvurt partý á vegum vinnunar hvar boðið var uppá smárétti og bjór (til hvers að mæta annars?). Þar var rífandi stemning og allir í stuði. Samt ekki meira stuði en svo að um tíuleytið fór ég í bæinn og "rambaði" inná Dillon hvar sagnfræðinemar voru að gera sér glaðan dag, ellegar glatt kvöld og var setið að sumbli þar í nokkurn tíma og skrafað um landsins gagn og nauðsynjar.
Þegar klukkan var orðin meira en hún var þegar ég settist inná Dillon þá fór ég niður á Grandrokk hvar voru að hefjast tónleikar með hljómsveitinni 200.000 naglbítar. Á einhvern stórundarlegan hátt tókst mér að fá frítt inn....og það tvisvar!!! Tónleikarnir sjálfir voru þrælgóðir og ég er bara nánast orðinn hardcore aðdáandi bandsins, enda eiga þeir flott lög og eru eðal læf hljómsveit.
Svo fór ég bara heim.....búið.
"Liðið hefur sýnt góða leiki og hefðum við unnið Charlton og Arsenal...værum við nálægt toppnum." (mbl.is 20.10.03)
Þessa setningu sagði enginn annar en Gerard nokkur Houllier eftir að Liverpool (áður þekkt sem bezta lið í heimi) hafði tapað þriðja leiknum í röð í ensku úrvalsdeildinni. Þetta er eitthvert heimskulegasta komment sem ég hef séð frá þjálfara nokkurn tímann, og hafa þau nú verið ófá.
Það náttúrulega segir sig sjálft að ef við hefðum unnið alla okkar leiki hingað til þá værum við á toppnum, en það breytir því ekki að liðið er komið í tíunda sætið í deildinni og er nú þegar tólf stigum á eftir efsta liðinu. Ég held að herra Houllier ætti að fara að finna sér eitthvað annað að gera. Næst kemur örugglega þessi setning:
"Ef hin liðin væru ekki svona góð þá værum við bestir."
Annars datt ég inná bloggið hjá nafna mínum Jakobssyni á dögunum. Mæli eindregið með þeirri lesningu þó svo að ég sé nú ekkert endilega sammála því sem hann er oft að skrifa. Þó svo að bloggið hans heiti einkamál og merkt sem blogg fyrir hann sjálfan og vini hans þá læt ég hér fylgja tengil: Tengill
Mæli sérstaklega með 100 atriða listanum hans.
Þessir 100 atriða lista virðast vera mikið tízkufyrirbrigði á blogginu þessa dagana. Ég ætla ekki að birta slíkan lista.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home