fimmtudagur, október 16, 2003

-Draumfarir-
Þegar þessi pistill er skrifaður er ég ekki á tónleikum á Nasa þar sem hljómsveitin Leaves átti að koma fram meðal annara.....anywho.

Mig dreymdi í nótt að ég væri kominn í gömlu vinnuna mína í álverinu í Straumsvík. Var settur beint í áltökuna og hafði svo sannarlega engu gleymt. Reyndar var þessi draumur mjög sorglegur þar sem það gerðist ekkert annað en það að ég var að soga ál uppúr kerjum, ekki mikið hugmyndaflug í gangi, bara fólk að vinna.
Annars er álverið sá staður þar sem ég vildi hvað síst vera að vinna. Kannski fyrir utan vélsmiðjuna Norma sem er einhver allra versti vinnustaður sem fyrirfinnst á jarðríki, það geta Helgi bróðir og Ívar vinur hans vottað.

Í dag fékk ég voða fínan ferða geislaspilara í vinnunni. Spilara þennan fékk ég fyrir að selja voðalega mikið af tiltekinni tegund af farsímum.
Það sem er sniðugt við þennan spilara er það að hann getur spilað mp3 fæla sem er mjög gott að því leytinu til að maður getur hlaðið inn á hann fleiri klukkutímum af tónlist. Ég er nokkuð vongóður um að spilari þessi eigi eftir að stytta mér aldurinn á bókhlöðunni í vetur.

Á morgun er stefnan svo sett á eitthvurt partý í vinnunni og svo vona ég að restin af helginni feli í sér einhverja tónleika á Airwaves, heill hellingur sem mig langar að sjá, vantar bara ferðafélaga.
...en jæja.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com