sunnudagur, október 05, 2003

-Lost weekend-
Þessi helgi sem nú er senn að baki er búin að vera ansi hreint mögnuð. Helgin byrjaði að sjálfsögðu á föstudaginn eins og lög gera ráð fyrir. Byrjaði kvöldið á því að fara með Heyzu og Dagnýju á kynningu hjá Tölvudreifingu (ekki Tölvumyndum Heiðrún!) hvar verið var að kynna eitthvurt sjónvarp sem ég á að fara að selja í búðinni. Helsta ástæða þess að við fórum á þessa kynningu var að sjálfsögðu sú að boðið var uppá bjór og pizzur. Eins og flestir vita er ókeypis bjór langbestur.
Eftir kynninguna fórum við þrjú uppí Háskóla þar sem þýskunemar héldu októberfest og hvílík snilld sem það var. Alveg sneisafullt af fólki, ódýr bjór, saltkringlur (Brezel), Bratwurst og til að fullkomna kvöldið þá var eðal týrólatónlist í gangi. Sem mikill aðdáandi þýskrar menningar var ég algjörlega á heimavelli. Eina sem máske vantaði voru eins lítra bjórkönnurnar og sauerkraut (sem er reyndar viðbjóður en fylgir samt alveg þessari stemningu). Sem sagt gríðarlega skemmtilegt kvöld.

Gærkvöldið var líka hressandeh (Bjögga style). Kíkti á djammið með Davíð og Stefáni, sem er eitthvað sem oft vill enda í einhverju rugli. Stefán fann uppá ansi mögnuðum drykkjuleik sem gekk út á það að við þræddum hvern einasta pöbb frá Hressó og upp Laugaveginn og við urðum að fara inn á hvern einasta stað og fá okkur einn bjór og skot. Við komumst sem sagt uppá Grandrokk og þá var maður aðeins farinn að finna á sér.....two times! Þá var tekin sú ákvörðun að rölta uppá 22 og slútta leiknum þar. Þessi leikur fór ekki vel í mig, ekki frekar en drykkjuleikir almennt.
Dagurinn í dag hefur svo farið í algjöra vibba þynnku með tilheyrandi loforðum um að gera þetta aldrei aftur og þess háttar sem verður örugglega allt gleymt þegar líða fer á vikuna.

Mér reiknast til að það séu áttatíu dagar til jóla. Það fær mann vissulega til að hugsa.

Annars er Idol að byrja, ég nebblega missti af þættinum á föstudaginn og er búinn að heyra ýmsar sögur um þennan þátt þannig að mér finnst ég verða að kíkja á hann. Svo er Óli Már félagi minn líka að standa sig svo vel í þessari keppni, gaman að fylgjast með því.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com