sunnudagur, september 21, 2003

-Brim-kló var það heillin-
Gærdagurinn var einhver sá allra bezti í manna minnum. Ekki nóg með að Liverpool hafi unnið góðan sigur þá tóku FH-ingar sig til og kjöldrógu einhverja lélegustu Íslandsmeistara seinni tíma. 7-0 urðu lokatölur og gerði það að verkum að FH endaði í öðru sæti og KR varð Íslandsmeistari með fæst stig sem lið hefur fengið í tíu liða deild. Þar að auki er KR liðið með eitt mark í plús sem er arfaslakur árangur hjá meisturum.
Það hefur væntanlega verið líf og fjör á lokahófinu hjá þeim í gær.

Um kvöldið kíkti svo Pferdinn í heimsókn og við drukkum nokkra bjóra og horfðum á Popppunkt (þrír samhljóðar í röð, dæmi: þátttaka), sting tónleika og sitthvað fleira. Þegar klukkan var farin að ganga eitt ákváðum við að skella okkur í Kaplakrikann þar sem í gangi voru stórtónleikar með hljómsveitinni Brimkló. Gríðargóð stemning var á staðnum þó svo að meðalaldurinn hafi verið í hærra lagi.
Ekki varð maður fyrir vonbrigðum með drengina (lesist gamalmennin) í Brimkló. Þeir renndu í gegnum alla klassíkerana svo sem Skólaball, Nína og Geiri, Eitt lag enn (eða eitt lag til, man ekki hvort það heitir) og fleiri góð lög.
Reyndar entist ég ekki lengi í Krikanum heldur fór ég nokkuð fljótlega í bæinn hvar ég hitti Huldu og Hákon í gríðarmiklu fjöri.
Svo var það bara meiri bjór og skemmtun framundir morgun. Líf og fjör.

Í dag voru svo tvær hljómsveitaræfingar. Fyrst með Haukabandinu þar sem ég spila á bongótrommur og hristur af ýmsu tagi. Mikil stemning og mjög gaman.
Svo seinna í kvöld var æfing hjá Latinbandinu. Mikil stemning og mjög gaman.
Þar fyrir utan á ég líka að vera í skóla þannig að það er eiginlega einum of mikið að gera akkúrat þessa dagana. Eiginlega hef ég ekki tíma til að skrifa þetta blogg. Verð eiginlega bara að fara að hætta núna.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com