föstudagur, september 05, 2003

-Jeff er í fríi-
Hver man ekki eftir þessu stórgóða lagi með Þorgeiri Ástvaldssyni sem svo var endurgert í sumar með Landi og sonum? Snilldin ein.

Á erfitt með að komast yfir það hvað Smiths er góð hljómsveit.....og ég sem þoldi þá ekki þegar ég var yngri. Skúli Helgason var alltaf með einhverja þætti um Smiths og Morrisey í útvarpinu og ég fékk alveg grænar þegar ég heyrði þessa tónlist. Reyndar var ég að hlusta á Wham! (upphrópunarmerkið er mikilvægt) á þessum tíma þannig að ég get ekki mikið sagt, en svona getur maður þroskast með tímanum.
Svo hef ég líka verið að rifja upp kynni mín af snillingnum Kate Bush. Hef verið harður aðdáandi frá því ég heyrði Wuthering Heights fyrst, sem gerðist eitthvað í kringum þriggja til fimm ára aldur. Skellti gamla góða Lionheart disknum í spilarann í gær, mikil snilld, annars er Hounds of Love sennilega besti diskurinn hennar.....svona fyrir þá sem vilja skella sér á fullu í Bush fræðin.

Á morgun (eða í kvöld, þetta er skrifað eftir miðnætti á fimmtudagskvöldi) stendur mér til boða að fara á eitthvurt djamm á vegum Símans. Er að spá í að kíkja örlítið, í einn eða tvo kalda, ekki mikið meira enda er massa djamm fyrirhugað á laugardaginn. Fyrirpartý fyrir landsleikinn mikilvæga og svo almennt djamm eftir leikinn þannig að það verður vel tekið á því.

Svo á sunnudaginn mun ég stjórna beinni útsendingu á Haukavefnum frá leik Hauka og Leifturs/Dalvík sem fram fer fyrir norðan. Ég hvet að sjálfsögðu alla Haukamenn til að fylgjast með enda leikurinn upp á líf og dauða fyrir liðið. Hann hefst klukkan fjórtánhundruð.

Í gær sá ég í fyrsta skipti nokkra þætti af Family guy sem mér skilst að Skjár einn ætli að taka til sýninga í vetur. Þetta eru miklir snilldarþættir. Kannski ekki alveg sama snilldin og Hómer og South Park en í svipuðum flokki. Mæli með þessu.
Reyndar skilst mér að það sé búið að taka þessa þætti af dagskrá í Bandaríkjunum þar sem áhorf var eitthvað lítið. Þetta er ekki fyrsti snilldarþátturinn sem er blásinn af þar í landi. Það fór eins fyrir Futurama og hinum frábæru þáttum Critic þar sem Jon Lovitz fór á kostum. Ætli það fari ekki eins fyrir Latabæ?

Fleira var það ekki í bili.
Góðar stundir.


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com