-Hvað á maður að segja Logi?-
.....það er ekki gott að segja Heimir.
Eitt og annað hefur á daga mína drifið frá því síðast var bloggað. Fyrst ber kannski að nefna að knattspyrnuliðið ástsæla Kóngarnir komst ekki í úrslitakeppni utandeildarinnar. Töpuðum úrslitaleik í riðlinum 2-4 og klúðruðum þar með okkar möguleikum.
Í gær gerði strákurinn sér svo lítið fyrir og festi kaup á glæsibifreið. Subaru Impreza heitir sú og er fædd árið 1998. Lítur bara vel út í alla staði og bara mjög góð kaup. Allt eins og það getur best orðið.
Annars hef ég ósköp lítið að segja eins og er. Sumarið að verða búið og það styttist allverulega í skólann, en það styttist líka allverulega í Foo Fighters tónleikana sem ég held að verði rosalegir. Mikil tilhlökkun þar á ferð.
Ég læt heyra frá mér um leið og eitthvað gerist.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home