þriðjudagur, júlí 22, 2003

-Popp og kók-
Í spilaranum síðustu daga hefur aðallega verið þrennt: Nýi diskurinn með Cardigans, Long gone before daylight. A Camp, sóló prójekt Ninu Persson úr Cardigans (Gummi Jóh á soldið heiðurinn af því, takk Gummi) mikil snilld og svo írsku drengirnir úr The Thrills, virkilega flott tónlist og Big Sur búið að vera í miklu uppáhaldi síðustu vikurnar.
Mæli með þessu öllu saman.
Svo er ég að fara að horfa á tónleika með Roger Waters (úr Pink Floyd) sem ég var að fá lánaða á dvd. Miklir snilldartónleikar þar sem hann tekur slatta af efni úr Pink Floyd safninu. Mikið gaman.

Svo er FH bara komið í undanúrslit í bikarnum eftir frækilegan sigur á Valsmönnum í kvöld. Nú er bara að fara alla leið og hirða loksins þessa dollu.

Að lokum vil ég minna alla fótboltaáhugamenn á það að á morgun spila Kóngarnir við Babylon í Utandeildakeppninni í fótbolta á gervigrasinu í Laugardal. Ef við Kóngar vinnum þennan leik þá komumst við í annað sætið í riðlinum og þá getur sko allt gerst.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com