-Utanlandsferð-
Í kvöld ætla ég að bregða mér út fyrir landssteinana ásamt vinnufélögum mínum. Ferðinni er heitið á litla eyju skammt undan Reykjavík sem nefnist því skemmtilega nafni Viðey. Þarna hafði m.a. Skúli Magnússon fógeti aðsetur á sínum tíma en hann kom einmitt á fót Innréttingunum sem má segja að sé fyrsti vísir að Reykjavík sem heildstæðu bæjarsamfélagi. Um þetta má lesa í ritgerð sem ég gerði þegar ég var í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Ritgerð þessa er hægt að kaupa á vægu verði og er hún til sölu heima hjá mér.
Nú, í Viðey stendur til að grilla, drekka bjór og tralla og tjútta fram eftir kvöldi. Veðurguðirnir (sem reyndar eru ekki til í neinum trúarbrögðum) virðast ætla að verða blíðir við okkur, enda rjómablíða úti núna........meira hef ég bara ekki um það að segja.
Takk fyrir mig.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home