fimmtudagur, júlí 10, 2003

-Kewell never walk alone!-
Þær gleðifréttir bárust mér og öðrum stuðningsmönnum besta liðs í heimi í gær að hinn mjög svo spræki fótboltamaður, Harry Kewell sem ku ættaður frá Ramsey götu í Ástralíu, hafi ákveðið að gerast leikmaður liðsins næstu fimm árin. Nú hyllir bara undir að Liverpool verði ríkjandi stórveldi á Englandi næstu árin enda mikill liðsstyrkur á ferðinni og svo munu einhverjir væntanlega bætast í hópinn á næstunni.

Eftir mikinn þrýsting frá Denna hef ég ákveðið að tala stuttlega um það þegar ég fékk Playstation 2 vél um daginn.
Hefst þá lestur:
Á mánudaginn var mér afhent leikjavél af gerðinni Playstation 2. Þetta fékk ég fyrir að hafa selt ákveðið mikið magn af símum frá SonyEricsson undanfarnar vikur og mánuði. Óhætt er að segja að fögnuðurinn hafi verið mikill og fölskvalaus (sem ég held að sé orð). Já svo er nú það.

Þetta var sagan um drenginn sem var svo duglegur í vinnunni að hann fékk leikjatölvu í verðlaun, takk fyrir.

Vona að þú sért ánægður núna Denni.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com