-Getur einhver staðfest þessa frétt?-
Á hinum stórskemmtilega vefmiðli frettir.com hefur síðustu daga verið fjallað um það að ástsælasta söngkona landsins, Birgitta Haukdal, hafi setið fyrir í einhverjum myndaþætti í Bleikt og blátt árið 1999. Ég tek þessu með dálitlum fyrirvara vegna þess að ég held að svona myndir væru komnar á netið með það sama ef þær væru til. Samt hefur ritstjórn Frétta yfirleitt verið mjög áreiðanleg í fréttaflutningi þannig að ég veit ekki hverju ég á að trúa.
Í tilefni af degi kvenna þá er kommenta kerfið mitt bleikt í dag. Ef þið viljið sýna stuðning við konur (já og alla femínista) í verki þá skiljið eftir eitthvað fallegt komment hjá mér.
....var þetta sorgleg tilraun til að fá fólk til að kommenta? Það nefnilega hefur verið eitthvað dræmt undanfarið. Máske að bloggið sé orðið svona leiðinlegt. Nei, held það varla.
Ég sá í mogganum í dag að tríóið B3 ætlar að halda tónleika á Jómfrúnni á laugardaginn. Ég held að það sé nokkuð ljóst að ég verði þar enda hið fínasta band þar á ferðinni. Tilvalið að fá sér einn eða tvo kalda og hlusta á jazz í rjómablíðunni sem verður á laugardaginn.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home