-Reiðilestur-
Ég fór á fótboltaleik í kvöld, sem er ekki í frásögur færandi nema það að ég þurfti að reiða fram heilar 1200 (eittþúsundogtvöhundruð) kr. íslenskar inn á leikinn en eins og flestir eiga að vita kostar ekki nema 1000 kall á alla venjulega velli. Nú halda menn eflaust að ég hafi verið á KR vellinum en svo var nú aldeilis ekki. Þetta atvik átti sér stað á Fylkisvellinum í Árbæ og ég hef hingað til talið Árbæinga til heiðvirðs fólks en þarna fóru þeir alveg með það. Hvað það er sem er svona sérstakt við Fylkisvöllinn sem gerir það að verkum að ég þarf að greiða tvöhundruð krónur aukalega til að komast á völlinn er ég ekki alveg að sjá. Ég vona svo sannarlega að hér hafi átt sér stað einhver leiðinleg mistök sem Árbæingar kippi í lag hið snarasta. Um leikinn er það að segja að hann var ekki góður.
Ég horfði á boxið í gær og ég verð að segja að mér finnst þessir íslensku boxarar ansi undarlegir margir hverjir. Fyrir keppnina var mikið talað um það hvað við værum heppnir að fá Írland hingað til að keppa við okkar lið og ég minnist þess að hafa heyrt einhvern tala um að venjulega þyrftu menn að bíða í ca. tíu ár eftir því að fá þetta lið hingað til lands en Írarnir væru svo ánægðir með það sem væri að gerast í íslensku boxi að þeir hefðu viljað gera hvað sem er fyrir okkur. Hvað gera svo íslensku boxararnir? Jú, sýna þeim ýmis konar óvirðingu allan tímann. Kalla þá kellingar og biðja um að fá betri boxara næst (þetta var sagt í annari lotu eins bardagans og tvær lotur eftir og bardaginn engan veginn unninn) og gefa þeim merki með handahreyfingu sem er kannski erfitt að lýsa í skrifuðum texta (gaurinn sem sagt þóttist vera að fróa sér eftir að hafa kýlt einn þeirra niður, mjög gáfulegt). Þess má geta að Írland vann þetta 4-2. Reyndar voru flestir þeirra mjög íþróttamannslegir en þegar tveir eða þrír þurfa að vera með einhverja svona takta þá er það ekkert sérlega góð auglýsing fyrir íþróttina. Nú fæ ég allt boxlandsliðið á bakið fyrir að hafa skrifað þetta, þannig að ef ég blogga ekki meir þá vitið þið ástæðuna :)
En til að enda þetta á jákvæðum nótum þá eru nokkrir í þessu liði sem eru býsna góðir og þá sérstaklega Skúli "Tyson", hann er allavega nógu klikkaður til að verða góður í þessari íþrótt (klikkaður í jákvæðri merkingu þess orðs :) ).
Svo verð ég í lokin að viðurkenna eitt fyrir ykkur lesendur góðir, mér finnst nýja lagið hans Justin Timberlake, Rock your body, bara ansi kúl lag. Vona að ég hafi ekki móðgað neinn með þessu :)
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home