-Pulitzer?-
Þá er ég búinn að skila af mér fyrstu grein minni á heimasíðu knattspyrnudeildar Hauka. Ansi stoltur af stráknum enda var hann ekki lengi að hrista þetta greinarkorn úr erminni. En þetta er bara byrjunin, það eru stærri sigrar framundan.
Talandi um sigra, Haukarnir sem sagt unnu 3-2 í dag en FH tókst ekki að leggja skagamenn. Klaufaskapur einn og sér kostaði FH tvö stig í dag en liðið var þó að spila mun betur en ég þorði að vona.
Já krakkar, fótboltasumarið er byrjað og það er gott.
Fór á djasstónleika á föstudaginn á Caffé Kúltúre (já þetta er skrifað svona) hvar hljómsveitin B3 var að spila. Sá þessa sömu hljómsveit spila fyrir nokkrum vikum síðan en þeir voru bara milljón sinnum betri á föstudaginn. Voru að taka ýmsa gamla slagara sem ég hef sjálfur spilað oftar en ég veit ekki hvað. Lög eins og Cantaloupe Island og Sissy Strut hljómuðu m.a. og svo gamli Stevie Wonder slagarinn Big brother sem drengirnir tóku í sömu útgáfu og Larry Goldings gerði fyrir nokkrum árum síðan. Ég mæli með herra Goldings, mikill Hammond meistari.
Svo fór ég í afmæli í gær en það er nú önnur saga.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home