föstudagur, maí 09, 2003

-Fíflagangur-
Í dag er fíflagangsdagur í vinnunni hjá mér. Svokölluð vorhreingerning fer fram í dag og af því tilefni klæða deildirnar sig upp í einhverja búninga og alls konar sprell og læti fylgja í kjölfarið. Þar sem ég og við hér í búðinni erum í svokallaðri framlínu þá er ekki mjög vel séð að við séum í einhverjum fíflabúningum. Í staðinn fengum við afhenta boli sem á stendur "Það er allt í drasli OG það er allt í lagi", mjög sniðugt allt saman.

Svo verður vorgleði í kvöld. Veit ekki hvort það verður eitthvað tekið á því þar enda stór dagur framundan.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com