mánudagur, apríl 28, 2003

-Hvar eru Simpson þættirnir?-
Ég var búinn að sjá einhvers staðar talað um það að Ztöð 2 ætlaði að byrja að sýna Simpson þættina með vorinu. Nú er komið vor og búið að vera í einhvern tíma og ekkert bólar á þessum þáttum. Ég sá m.a.s. auglýsta dagskrá fyrir maí mánuð og hvergi var minnst orði á þessa skemmtilegu fjölskyldu frá Springfield. Held að það sé kominn tími á að ég setjist niður og riti bréf til stöðvarinnar, hef gert það áður og það virkaði held ég bara nokkuð vel, allavega voru þættirnir komnir í sýningu stuttu seinna.

Það kom kona inní búðina í dag sem fékk þann heiður að vera afgreidd af mér, sem er kannski ekki í frásögur færandi, nema hvað að hún notaði eitt orð ákaflega mikið sem ég held ég hafi aldrei heyrt nokkra manneskju nota að staðaldri. Þetta var orðið "grúví". Hver notar þetta orð?
"Vá hvað þetta er grúví sími" "Noh, þetta er svakalega grúví" Ég mátti hafa mig allan við að verjast hlátri og var á tímabili farinn að halda að hún væri bara að gera grín að mér eða eitthvað álíka.
Svo kom önnur kona í búðina sem krafðist þess að ég stytti fyrir hana loftnetssnúru af því að hún borgaði víst nógu mikið í afnotagjöld af Ríkisútvarpinu!!! Fyrir þá sem ekki vita þá vinn ég hjá Landssímanum en ekki RÚV.

Já, fólk er víst ekki eins og fólk er flest.

Í kvöld er ég að hlusta á Lifun, þökk sé tonlist.is. Þennan disk átti ég í tveimur útgáfum á sínum tíma en er fyrir margt löngu búinn að týna þeim báðum. Flottur diskur. Svo týndi ég líka tvöfalda safndisknum með stórfönkbandinu Meters og bið ég þá sem kannast við málið og hafa hugsanlega séð þennan disk að hafa samband við mig......það er reyndar orðið soldið langt síðan ég týndi þessu en það má alltaf reyna.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com