-Sunnudagur-
S: "Já halló"
T: "Sæll Saddam, Tariq hérna"
S: "Já blessaður"
T: "Heyrðu, ég var að spá hvort þú værir til í að kíkja á mig og kíkja á Sleepless in Seattle. Ég var að fá hana á DVD"
S: "Já heyrðu það hljómar ekki illa. Frábær mynd og stórkostlega leikin af Tom Hanks og Meg Ryan"
T: " Einmitt, en samt var myndin You´ve got mail ekki alveg jafngóð, það var ekki alveg sama kemistrý í gangi þar. En hvenær heldurðu að þú komir?"
S: "Ég ætlaði að senda smá eiturvopn á nokkra Kúrda og svo kíki ég bara á þig"
T: "Heyrðu gott mál, ég hlakka til að sjá þig"
S: "Ok, bæ"
Þetta var ímyndað samtal á milli Saddam Hussein og Tariq Aziz skömmu eftir að sá síðarnefndi keypti sér myndina Sleepless in Seattle á DVD en það er ein af þeim myndum sem fundust á heimili hans nú á dögunum eftir fall stjórnarinnar í Bagdad. Eyðileggur það ekki soldið kúlið hjá svona ógnarstjórn þegar þetta er ein af uppáhaldsmyndunum hjá þessum mönnum? En ég vil ítreka það að þetta var bara ímyndað samtal, ég hef engar heimildir um það að þetta hafi átt sér stað en finnst það svo sem ekkert óhugsandi.
Annars er við hæfi að rifja upp atburði helgarinnar svona á sunnudegi. Gærkvöldið var reyndar bara rólegt, fór á eina létta hljómsveitaræfingu og var svo bara rólegur það sem eftir lifði kvölds. Á föstudaginn fór ég hins vegar á tvenna tónleika. Annars vegar hjá vinum mínum Hákoni og Díönu en þau voru að spila á Café Romance og fórst það ágætlega úr hendi, reyndar voru ekki margir sem lögðu leið sína þangað.
Seinni tónleikarnir voru hjá djasshljómsveitinni B3 sem er skipuð þeim Agnari Má á hammond hljóðgervil, Erik Qvik (vona að þetta sé skrifað svona) á trommur og Ásgeiri Ásgeirssyni á gítar. Orðið alltof langt síðan ég hef farið á djasstónleika en þessir voru nú alveg ágætir. Bandið var að spila ágætlega en ég hefði samt viljað heyra meira fönk og grúv, átti nú svona von á því þar sem þeir segjast leita mikið í smiðju Larry Goldings og félaga (ef þið hafið ekki heyrt í Larry Goldings þá hvet ég ykkur eindregið til að kíkja á hann).
Svo eftir þetta hellti maður sér bara í bjórinn og tók hinn venjulega djammpakka og hélt til í miðbænum langt frameftir nóttu. Dagurinn í dag fór svo í almenna sunnudagsþreytu en seinnipartinn fór ég og hjálpaði foreldrum Jónsa félaga míns að flytja......og þvílíkt magn af dóti sem fólk getur sankað að sér í gegnum tíðina. Vorum heila þrjá tíma að tína alla innanstokksmuni út og flytja þá í næstu götu fyrir ofan. Í ofanálag held ég að ég sé kominn með asíu inflúensuna....tja allavega er ég búinn að vera hóstandi eins og m.....f...... alla helv.....helgina og ekki veit það á gott.
Lag dagsins er Sinister Minister með hljómsveitinni Flecktones með sjálfan Bela Fleck sem forsprakka. Þeir sem hlustuðu á morgunþætti Eiríks Jónssonar á Bylgjunni fyrir nokkrum árum kannast örugglega við þetta lag. Kristján félagi minn var að grafa þetta lag upp sem ég hafði ekki heyrt langa lengi. Bara hið ágætasta lag og ekki skemmir fyrir að Victor Wooten er að bassast í laginu og hann er alveg ágætur á sitt hljóðfæri kappinn.
Fleira var það ekki í dag krakkar mínir, sjáumst á morgun.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home