föstudagur, apríl 04, 2003

-Helgi framundan-
Nei það er ekki Helgi bróðir minn sem er framundan heldur ósköp venjuleg helgi (kúkur og pissss). En þetta verður reyndar engin venjuleg helgi því á morgun er árshátíð Landssímans og verður hún haldin með pompi og pragt (hvað svo sem það nú er). Það sem helst ber til tíðinda á þessari árshátíð er það að ég mun stíga á stokk ásamt þremur vinnufélögum og ætlum við að skemmta gestum með hljóðfæraslætti og söng. Verður án nokkurs vafa gerður góður rómur að skemmtiatriði þessu enda allt að því skothelt prógramm og mikið fjör.

Fór í bæinn í gær eftir vinnu til að leita mér að einhverri skyrtu til að vera í og ég er algjörlega búinn að komast að því að ég og verslunarferðir eigum enga samleið. Þetta er eitthvað það leiðinlegasta sem ég geri. Hins vegar get ég glatt ykkur með því að ég keypti mér tvær mjög flottar skyrtur og var bara allsáttur við lok leiðangursins.

Enn hefur ekkert spurst til gaursins sem rændi Sparisjóðinn við Reykjavíkurveg sem er eiginlega ótrúlegt miðað við hvað náðust fínar myndir af honum. Ég efast meira að segja um að fermingarmyndirnar hans hafi verið jafn góðar. Reyndar hefur annar og ekki síður alvarlegur glæpur sem var framinn sama dag ekki fengið jafn mikla umræðu og bankaránið. Ég er að sjálfsögðu að tala um innbrotið í bókasafn Hafnarfjarðar. Reyndar vilja einhverjir meina að sami maðurinn hafi staðið á bakvið bæði ránin. Hann hafi einfaldlega brotist inn í bókasafnið til að finna kort af bænum til að finna út bestu flóttaleiðina frá bankanum. Mér skilst líka að bókin "Bezt heppnuðu bankarán sögunnar" eftir C. Willard Burley hafi ekki fundist í gær þegar Eyjólfur Loftsson fv. vélstjóri ætlaði að leigja hana. Sel þetta samt ekki mjög dýrt.

Annars er það helst frétta að Saddam flugvöllurinn í útjaðri Bagdad kominn í hendur "bandamanna" og verður væntanlega nefndur Frelsis flugvöllur í kjölfarið ef maður þekkir Runna og félaga rétt. Reyndar er þetta stríð orðið soldið þreytt. Svona svipað og Nágrannar. Maður var voða spenntur þegar þættirnir byrjuðu og Helen Daniels og félagar voru aðal karakterarnir en svo fór að fjara undan þessu og nú eru þættirnir bara orðnir leiðinlegir........hljómaði þetta kannski hálf gay?

Minni á stærsta leik tímabilsins á morgun. Mínir menn fara í heimsókn á Old Toilet eins og gárungarnir kalla völlinn. Þetta verður svaka barátta og eru allir velkomnir heim til mín að horfa á leikinn í fyrramálið kl. ellefu. Ég mun væntanlega bjóða upp á staðgóðan morgunverð og góða skemmtun.

Læt þetta nægja í bili.
Góðar stundir.



0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com