-Stríðsbrölt-
Gaman að segja frá því að nú hefur alþjóðasamfélagið brugðist við aðvörun minni til írö(k)sku þjóðarinnar og nú er farið að ráðleggja írökum að yfirgefa landið. George Bush hélt einmitt ræðu í nótt þar sem hann ráðlagði Saddam Hussein og sonum hans að yfirgefa landið innan 48 tíma en það stemmir einmitt við mínar spár um það hvenær átök hefjist fyrir botni Persaflóa.
Nú er eins gott að maður sé búinn að borga áskriftina að Breiðvarpinu því ekki vill maður missa af stríði í beinni.
Það var háð annars konar stríð í Hafnarfirði í gær þegar áttust við Kóngarnir og FC CCCP sem bæði eru úr Firðinum. Skemmst er frá því að segja að Kóngarnir lutu í gras 5-3 í hörku leik. Ekki var ég með í leiknum enda, eins og margoft hefur komið fram, rifbeinsbrotinn. Skv. CM fótboltaleiknum þá getur svona brot tekið þrjár vikur að gróa þannig að ég bíð rólegur í tvær vikur í viðbót.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home