-Leti-
Hef verið latur við bloggið undanfarið....en nú skal bætt úr því.
Ég verð að byrja á því að lýsa vanþóknun minni á suður evrópskum knattspyrnumönnum. Þeir hafa margir hverjir átt við þann leiðinlega ávana að stríða að liggja óþarflega lengi vælandi ef brotið er á þeim. Þeir keyrðu algerlega um þverbak í kvöld er Inter frá Mílanó atti kappi við Newcastle. Ítalirnir lágu tímunum saman í grasinu vælandi en blótuðu svo í sand og ösku þegar var flautað á þá. Óþolandi.
En að öðru. Ég rak augun í það að um þessar mundir eru 30 ár frá því hið mikla snilldarverk Dark side of the moon með Pink Floyd kom út. Af því tilefni mæli ég með einum köldum og hugsanlega snilld eins og Breathe, Time, Eclipse.....eða jafnvel Money eða einhverju öðru snilldarlagi af þessari plötu. Er reyndar í þessum skrifuðu orðum að hlusta á lagið Wish you were here en það er víst ekki af þessari plötu.
En annars sit ég hér með brotið rifbein og brostnar vonir, enda eiga Kóngarnir að spila æfingaleik annað kvöld í Egilshöll og allt útlit fyrir að ég verði bara á meðal áhorfenda á þeim leiknum.....sem er ekki alveg að dansa enda er snilld að spila á þessum velli. Sendi drengjunum allavega stuð- og baráttukveðjur.
Smá tilvitnanir:
You couldn't fool your mother on the foolingest day of your life if you had an electrified fooling machine
Good Things don't end in "eum", they end in "Mania" or "Teria"
Oh, people can come up with statistics to prove anything. 14% of people know that.
Góðar stundir

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home