-..hann kann ekki að stýra, brýtur alla gíra....-
Fyrr í dag var ég að bauna á þá krakka sem voru að koma í búðina og syngja fyrir nammi fyrir það að vera ófrumleg í þeim lögum sem þau völdu. Ég sé það núna að það var rangt hjá mér að alhæfa svona því auðvitað leynast nokkrir gullmolar í svona hóp. Um miðjan dag í dag, eftir að hafa heyrt Gamla Nóa svo ógeðslega oft að mér var í rauninni farið að finnast lagið virkilega kúl, þá labbar inn í búðina drengur ca. ellefu eða tólf ára gamall með tösku í hendinni. Hann vindur sér upp að mér og spyr hvort hann megi spila fyrir mig og ég sagði já með semingi (hélt hann meinti að hann vildi syngja fyrir mig, hugsanlega Gamla nóa einu sinni enn). Drengurinn sem var ekki einu sinni í grímubúning, vippar töskunni á borðið og tekur uppúr henni eitt stykki fiðlu og spilar fyrir mig hvorki meira né minna en smá brot úr Eine kleine nachtmusik eftir Mozart!!! Mér féllust hendur og örugglega hefur sést blika tár á hvarmi við þessa fallegu tóna og ekki nóg með það að drengurinn fengi ríkulega launað hjá mér með nokkrum molum af Macintosh Quality Street heldur vatt sér að honum gamall maður og gaukaði að honum 500 krónum. Það mættu margir krakkar taka þennan unga dreng sér til fyrirmyndar.
Já það er gaman að enda daginn á svona jákvæðum nótum.....já eins og skáldið sagði: Lífið er yndislegt sjáðu, það er rétt að byrja hér.
Takk fyrir mig og góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home