miðvikudagur, febrúar 26, 2003

-Þema blogg númer tvö-
Tónlistarverðlaun fm957 fóru fram í kvöld eins og flestir vita. Fátt sem kom á óvart þar, Írafár fékk held ég fleiri verðlaun heldur en voru í boði. Óli félagi minn og hljómsveitin hans fengu ekki verðlaun fyrir þessa glæsilegu heimasíðu sem Óli hannaði og sér alfarið um.
Svo var náttúrulega rosalega gaman að sjá Skítamóral koma saman aftur eftir alltof langt hlé. Maður nánast klökknaði við að sjá drengina alla saman á sviði aftur.......og svo ætla þeir að sjá okkur aftur á páskunum, ég hlakka til að sjá hvað gerist þá.

Talandi um páskana þá hef ég verið að velta því mikið fyrir mér undanfarna daga hvað það er nákvæmlega sem ræður því hvenær páskarnir eru. Ég hef spurt menn sem ég tel sæmilega fróða en enginn hefur komið með nein svör. Ég er samt kominn niður á það að eitthvað gerist sjö vikum fyrir páska sem ákvarðar það hvar á dagatalinu þeir lenda.
Reyndar kom bróðir minn með það svar að þetta tengdist eitthvað því hvenær maður að nafni Jesú reis upp frá dauðum. Ég er að taka þá skýringu svona mátulega alvarlega. En ég bið fólk endilega að segja mér hvaða atburður það er sem ræður þessu. Póstið það bara í kommentin.

Talandi um kommentin þá hefur HaloScan.com verið að kúka á sig síðustu daga og vikur. Kerfið dettur inn og út og er núna búið að vera óvirkt í ca. sólarhring.

Talandi um sólarhring þá sá ég viðtal í sjónvarpinu, fyrir innan við sólarhring síðan, við konu sem er á þeirri skoðun að bann við einkadansi sé ekki skerðing á atvinnufrelsi. Hennar rök voru þau að þetta væri yfirleitt neyðarúrræði hjá konum til að geta framfleytt sér. Það væri sem sagt fátækt sem ræki þær í það að selja líkama sinn. Þá spyr ég: Er það þá einhver lausn fyrir þessar konur að svipta þær þessu síðasta úrræði sem þær þó hafa til að framfleyta sér? Er ekki verið að skjóta sendiboðann eða hengja bakarann fyrir smiðinn eða eitthvað annað gott orðatiltæki sem gæti passað inn í það sem ég er að tala um? Er ekki verið að byrja á vitlausum enda?

Talandi um enda þá er ég að spá í að enda þetta núna.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com