miðvikudagur, febrúar 19, 2003

-Poppþraut-
Nú eru loksins komin úrslit í Poppgetraun síðunnar (sjá neðar á síðunni) og sökum tæknilegra örðugleika hjá HaloScan.com þá gekk erfiðlega að ganga úr skugga um réttmætan sigurvegara. En eftir mikla yfirlegu þá er ljóst að Big Ö varð fyrstur manna til að svara þessari getraun en svarið var að sjálfsögðu Time með Pink Floyd. Ekki var spurt um af hvaða plötu þetta væri þó keppendur hafi séð ástæðu til að láta það fylgja með. En Sigurgeir stóð sig hetjulega og ætli hann fái ekki leigubílafarið á föstudaginn sem viðurkenningu fyrir að hafa tekið þátt.
Næsta getraun kemur innan skamms og er greinilegt að hún þarf að vera mun þyngri.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com