þriðjudagur, febrúar 18, 2003

-Kryddsíld-
Einhver góður blaðamaður var að skrifa á Vísi í gær um Ferguson/Beckham atvikið og sagði að Ferguson hefði sparkað stígvéli í Beckham. Þessi ágæti blaðamaður hefur greinilega farið beint í tölvuorðabókina og flett upp orðinu "boot" og fengið strax upp orðið stígvél og fundist það ósköp eðlilegt að maðurinn hefði gengið að næsta stígvéli (frá Nokia hugsanlega) og þrumað því í hausinn á Beckham þannig að af hlaust skurður á hausnum á honum. Ekki það að það séu takkaskór um allt í búningsklefa fótboltamanna. Nei nei, þar er allt morandi í stígvélum. Þetta minnir mig bara á söguna um manninn sem hélt að enska orðið yfir sjálfsmorð væri self-kill.

Haloscan.com fær mínus kvöldsins. Kommenta kerfið þeirra eru búið að vera niðri síðan á sunnudaginn og engin lausn virðist í sjónmáli. Þetta er náttúrulega hlutur sem verður að vera í lagi enda hafa menn verið duglegir að gefa mér komment.

Annars er lítið meira að segja í bili.
Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com