miðvikudagur, febrúar 12, 2003

-Ég ákæri-
Ég hef ákveðið að fara í mál. Eftir mikla yfirlegu hef ég ákveðið þetta. Þetta er málarekstur sem á eftir að verða fordæmisgefandi í komandi framtíð. Ég hef ákveðið að höfða mál gegn þeim aðilum sem sjá um þessa svokölluðu dc++ síðu sem er að miðla tónlist á netinu. Fyrir þá sem ekki vita hvað ég er að tala um þá er þetta síða sem er ekki ósvipuð kazaa eða napster nema efnið er allt saman vistað á Íslandi og er þarna að finna gífurlegt magn af tónlist og sérstaklega íslenskri tónlist. Nú hugsa margir "hvað er drengurinn að spá? Hvaða hagsmuni getur hann þurft að verja?". Jú, þannig er mál með vexti að á þessari síðu er verið að miðla plötu sem ég gaf út ásamt hljómsveit minni Funkmaster 2000 fyrir rúmum fjórum árum síðan. Eftir að þessi síða var sett upp held ég að það hafi ekki selst eitt einasta stykki af þessari plötu. Lesendur geta eflaust ímyndað sér hvað þetta þýðir mikið tekjutap fyrir mig og mína fjölskyldu. Börnin fara náttúrulega verst útúr þessu.
Þess vegna bið ég þá sem þetta lesa að redda mér númerinu hjá Jóni Steinari Gunnlaugssyni sem ég held að sé bezt til þess fallinn að stýra þessu máli. Ég hafði hugsað mér töluna 56 milljónir í bætur fyrir andlegt og tilfinningalegt tjón.
Svo er líka annar möguleiki í stöðunni, þeir geta hleypt mér inná þessa síðu þó svo að ég hafi ekki þessi 2GB sem er víst lágmarkskrafa til að komast inn á þetta. Já, ég er opinn fyrir ýmis konar samningaviðræðum.

Með kveðju
Sverrir "Lars" Sævarsson aus Ulrich.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com