-Leikrit-
Samtal írösku hermannanna (nananna hey na nanna) sem Colin Powell birti í gær væri ágætis díalógur í íslensku leikriti eða jafnvel íslenskri bíómynd, allavega eins og þetta kemur fyrir í Mogganum í dag. Persóna A, sem er óbreyttur hermaður gæti verið leikinn af Ingvari Sigurðssyni og persóna B, sem er hershöfðingi væri þá líklega leikinn af Gunnari Eyjólfssyni. Lesið eftirfarandi samtal með þetta í huga:
Samtalið á sér stað í gegnum síma eða talstöð
A: Við erum með breyttan vagn [hreyfanlega efnavopnaverksmiðju]. Hvað gerum við ef þeir sjá hann?
B: Þú varst ekki með breyttan vagn, er það? Þú hefur ekki einn slíkan?
A: Jú, ég er með einn.
B: Hvaða vagn, hvar fékkstu hann?
A: Úr vinnubúðunum hjá Al Kendi -fyrirtækinu.
B: Hvað segirðu?
A: Frá Al Kendi.
B: Ég kem og heimsæki þig í fyrramálið. Ég hef áhyggjur. Þið eruð allir ennþá með eitthvað.
A: Við fluttum allt á brott. Hér er ekkert lengur.
Leikritinu eða myndinni væri svo væntanlega leikstýrt af Baltasar Kormáki og sjálfur myndi hann fara með hlutverk Colin Powell. Ég finn peningalyktina af þessari hugmynd. Nú þarf ég bara fjársterka aðila til að hrinda þessu í framkvæmd. Kannski Bjarni Haukur og Árni sjónvarpsstjóri vilji leggja í púkk.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home