laugardagur, janúar 25, 2003

-Talk is what you suffer to get to sex - Woody Allen-
Í gær sá ég loksins nýjustu Woody Allen myndina, Hollywood Ending, og var það bara hin þokkalegasta skemmtun. Reyndar er þetta soldið frá því að vera ein af hans beztu en engu síður mjög fín mynd. Veit samt ekki hvort hann var meira að gera grín að Hollywood eða evrópskri kvikmyndagerð.....eða kannski báðum.

Íslenska landsliðið í handbolta er ennþá að kasta bolta og hrinda einhverjum útlendingum úti í Portúgal. Eru þegar þetta er skrifað að rúlla upp landsliði Qatar að viðstöddu fámenni. Held að ég hafi getað talið áhorfendur í höllinni og hugsanlega nafngreint stóran hluta þeirra. Lenti samt í rifrildi við einhvern gaur í bænum í gær sem hélt því fram að handbolti væri vinsæl íþrótt um allan heim og væri í gífurlegri sókn!!!. Ég átti ekki til orð en áttaði mig svo fljótlega á því að maðurinn var ekki beinlínis okkar helsti sérfræðingur í handbolta því hann tönnlaðist á því hvað Ólafur Sigurðsson væri góður leikmaður. Er það ekki fréttamaður?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com