-Sorgarfréttir-
Nú hafa borgaryfirvöld í Charlottesville í Virginíufylki í Bandaríkjunum ákveðið að rífa hinn fræga skemmtistað Trax. Nú veit ég að þetta kemur lesendum síðunnar í opna skjöldu enda nánast álíka mikið sjokk og þegar Glaumbær brann. Þessi staður er ekki hvað síst þekktur fyrir það að þarna hélt hljómsveitin Dave Matthews Band sína fyrstu tónleika og spiluðu þarna fyrstu vikur og mánuði á sínum glæsilega ferli.
Meðfylgjandi er linkur á síðu þar sem sjá má húsið skömmu eftir að byrjað var að rífa það en þess má til gamans geta að þarna mun í staðinn rísa Háskólasjúkrahús....ekki amalegt það.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home