-Hví er ég Arinbjarnarson?-
Eftir stórskemmtilegt gærkvöld þar sem var sungið, dansað og hlegið hefur einum fótboltaleik tekist að eyðileggja annars fínan dag. Hvernig einu liði tekst að spila ellefu leiki í röð án þess að sigra er mér hulin ráðgáta og mælist ég til þess að ríkisstjórnin skipi rannsóknarnefnd til að fara ofan í saumana á þessu máli og kryfja það til mergjar.
Pete Townsend játaði það að hafa haft undir höndum barnaklám en sagðist hafa verið að nota það í einhverri rannsóknarvinnu vegna ævisögu sinnar. Akkúrat. Það er gamla góða afsökunin.
En allavega í kvöld er trivial keppni hjá okkur félögunum þar sem ég, Jói og Pferdinn ætlum að rúlla upp tveimur hrokafullum félögum okkar. Þetta verður gríðarlega spennandi keppni og kæmi mér ekki á óvart að veðjað yrði uppá gríðarlegt magn af bjór enda kappsfullir menn á ferð. Að sjálfsögðu verður drukkinn bjór meðan spilað verður og kæmi mér ekki á óvart að kvöldið myndi enda í einhverri vitleysu í miðbæ höfuðstaðs landsins.....hugsanlega á De Boomkikker, tja það er aldrei að vita. Fylgist með.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home