mánudagur, janúar 06, 2003

-Nýárs-
Hefst þá blogg á nýju ári. Hef verið ofboðslega latur við að rita annála þessa fyrstu daga ársins....enda kannski ekki mikið að gerast svona almennt.
En fyrir þá sem hafa beðið spenntir þá var gamlárskvöldið alveg í góðu lagi. Bara góð stemning og allir sáttir.....þannig að ég segi bara takk fyrir mig.
En í kvöld varð ég fyrir miklum vonbrigðum. Ég var búinn að bíða í marga daga eftir sjónvarpsþætti sem var á RÚV í kvöld og átti að fjalla um samsæriskenningar í kringum tungllendingu Bandaríkjamanna í júlí árið 1969, þ.e.a.s. að Armstrong, Aldrin og þriðji tenórinn (þessi sísti af þeim) hafi aldrei lent þar heldur hafi þetta verið tekið upp í einhverju stúdíói í Hollywood eða jafnvel í "Area 51" eins og einhverjir vilja halda fram.
Skemmst er frá því að segja að það var aldrei reynt að hrekja það að þeir hafi lent á tunglinu heldur var einungis reynt að sanna það að BNA menn hafi látið útbúa myndir til að nota ef svo illa færi að ekki fengjust alvöru myndir af lendingunni. Svo var farið útí einhverjar kenningar um að CIA hafi látið drepa alla sem komu að sviðsetningunni og átti einhver gríðarlegur fjöldi af hermönnum að hafa tekið þátt í því, í miðju Víetnamstríðinu, allt saman eitthvað mjög einkennilegt.
Sem sagt þessi þáttur var frekar misheppnaður og þetta er rúmur klukkutími af mínu lífi sem ég fæ aldrei aftur.
Fyrir áhugasama bendi ég hins vegar á mjög skemmtilega heimasíðu hvar menn hafa gaman af því að hrekja svona samsæriskenningar:
www.badastronomy.com

Já og svo á Samfylkingin að vera orðinn stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Trúi því ekki fyrr en ég tek á því eins og maðurinn sagði....ja sei sei hvílík vitleysa.
Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com