-Smámunasemi-
Lennon/McCartney, McCartney/Lennon, Lennon/McCartney, McCartney/Lennon.
Hafa skal það sem betur hljómar og ég held að Lennon/McCartney hljómi betur. Annars skil ég ekki hvað manninum gengur til. Er lagið eitthvað meira hans ef nafnið hans er sagt á undan? Nú er líka vitað mál að drengirnir gerðu með sér samkomulag þegar þeir voru litlir drengir að sparka í bolta fyrir utan Goodison Park (reyndar bjuggu þeir í hverfi sem kennt er við Penny Lane og ég held að það sé ekkert nálægt Goodison Park sem þó er rétt hjá Anfield og á milli þeirra er Stanley Park, ég hef sko komið þangað ligga ligga lá) um að öll lög sem þeir semdu yrðu stíluð á Lennon/McCartney, og eins og Lionel Hutz sagði "...a contract is an aggrement which is unbreakable......UN-breakable"
Það held ég að Lennon snúi sér við á gröfunni núna.
En það er vika til jóla og það þýðir bara eitt.......það er einn mánuður og sex dagar í afmælið mitt. Þannig að fólk þarf að fara að huga að því hvað það ætlar að gefa mér í afmælisgjöf.
......og efst á óskalistanum.....trommusett. Reyndar held ég að Örvar frændi (eru ekki allir sem búa erlendis frændi eða frænka þó þau séu ekkert skyld manni?) ætli að gefa mér trommusett í jólagjöf. En það breytir því ekki að þetta er smámunasemi í Paul McCartney sem þó samdi eitt af betri jólalögum allra tíma...Wonderfull Christmas Time.
Ef einhverjum fannst þetta samhengislaust blogg þá segi ég takk fyrir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home