-Jólarokk-
Hin geysivinsæla listakona Sigurrós heldur tónleika í Háskólabíó í kvöld og á morgun og ég er að fara á hvorugan tónleikinn. Hins vegar er ég að fara á Coldplay og Ash í Höllinni í næstu viku og hlakka gríðarmikið til. Síðustu tónleikar voru góðir en ég hef á tilfinningunni að þessir verði jafnvel betri....enda snilldar hljómsveit þar á ferð. Ég veit minna um Ash en þau ku vera góð og við bíðum bara spennt eftir þessu öllu saman.
Á síðunni hjá Steingrími Sævarri Ólafssyni rakst ég á þessa snilld, þarna getur maður búið til ræðu með George W. Bush yngri. Reyndar er ákveðinn galli á þessu að maður getur bara notað orðið freedom einu sinni en Bush notar það svona fimmtíu sinnum í hverri setningu......jafnvel þó hann sé eingöngu að segja manni hvað klukkan er.
En góðu fréttirnar eru þær að Liverpool er komið áfram í einu alvöru Evrópukeppninni sem eftir er. Þetta er keppni þar sem liðum er refsað fyrir minnstu mistök. Menn geta ekki leyft sér þann munað að tapa fleiri fleiri leikjum og samt unnið keppnina eins og í þessari svokölluðu "Meistaradeild". Ekki vissi ég að Newcastle og Manchester Utd. væru meistarar. Í hverju eru þessi lið meistarar? Nú eða Bayer Leverkusen sem aldrei hefur unnið neitt.
En það styttist til jóla og ég er glaður.....já ég er mjög glaður.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home