-Sorglegt-
Þá er þessi magnaða helgi loks afstaðin og var nú ýmislegt brallað í þetta skiptið. Vegna þrýstings frá ákveðnum aðila hef ég ákveðið að skrifa sérstaklega um föstudagskvöldið. Á föstudaginn fór ég s.s. á jólaglögg hjá Landssímanum. Glöggið var nú frekar dræmt eins og það er yfirleitt enda fór það svo að fólkið sem ég þekkti þarna fór að hverfa eitt af öðru og að lokum áttaði ég mig á því að ég var orðinn einn eftir ásamt misfullum Símastarfsmönnum sem ég kannaðist lítið sem ekkert við. Þá var að sjálfsögðu bara eitt að gera og það var að kíkja yfir á Ölver, enda í næsta hluta hússins, og sjá hvort ekki leyndist einhver þar sem gæti orðið drykkjufélagi minn og hugsanlega taka eins og eitt lag í karaokí. Ekki fann ég drykkjufélaga á Ölveri en það stoppaði drenginn ekki í því að leyfa gestum staðarins að njóta silkiraddar sinnar. Flutt var rólegt og hugljúft lag eftir hljómsveitina Foo Fighters og þóttist ég hafa gert því lagi hin bestu skil og gaf mig allan í flutninginn. Svo þegar síðustu tónar lagsins dóu út.........skerandi þögn. Ekki EITT einasta klapp. Ég beið bara eftir skerandi fídbakki úr mæknum eins og gerist alltaf í bíómyndunum. Af þessum völdum hef ég ákveðið að skemmta ekki á Ölveri fyrr en staðurinn kemur sér upp áhorfendum sem kunna gott að meta. Ég hef oft haldið söngskemmtanir þarna og aldrei fengið jafn lélegar viðtökur og núna síðast.
Sveiattan!!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home