fimmtudagur, nóvember 28, 2002

-Frumlegheit-
Eru tónlistarmenn að verða uppiskroppa með nöfn á plötum? Það er ekki að ástæðulausu sem ég set fram þessa spurningu. Fyrir fjórum árum síðan gaf hljómsveitin REM út snilldarplötu sem bar nafnið Up. Allt í lagi með það. Fyrr á þessu ári gaf Peter Gabriel út aðra snilldarplötu sem bar einmitt nafnið Up. Svo var ég að skoða Billboard listann og viti menn, í efsta sæti trónir Shania Twain með plötuna......Up, um gæði þeirrar plötu vil ég ekkert segja þar sem ég hef einungis heyrt eitt lag af henni og það hljómar ekki vel.
Nei, ég var bara svona að spögulera.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com