þriðjudagur, nóvember 26, 2002

-Félagar-
Sæl öllsömul. Byrja á því að afsaka tímann sem liðið hefur á milli blogga en allt á það sínar útskýringar......enda eru vegir bloggsins rannsakanlegir. Fyrir algjöra tilviljun og slembilukku datt ég inná skemmtilega heimasíðu hjá Helga Svavari trommuleikara en við vorum einmitt félagar í hljómsveitinni Funkmaster 2000 til langs tíma þangað til hann rak mig enda augljóst að ekki gengi upp að hafa tvo trommuleikara af svona kalíberi í sömu hljómsveit. Ég er búinn að bæta drengnum við á listann hérna vinstra megin á síðunni og bið ég ykkur endilega að kíkja á þetta enda einhver efnilegasti trymbill sem landið hefur alið.......og er þar að auki kominn með þetta skemmtilega Péturs Östlund "look" (útlit).

Að lokum vil ég benda á það að ég hef rökstuddan grun um að ráðist verði gegn íslenska hvalveiðiflotanum og verði öllum Hvals bátunum sökkt í Reykjavíkurhöfn. Þetta byggi ég á samtali við bróður minn og mínum innri vitrunum. Reyndar er einnig líklegt að mig hafi dreymt þetta.....eða jafnvel bara séð þetta í sjónvarpinu. Í það minnsta hef ég fengið mikinn stuðning frá Ástþóri Magnússyni við þessu enda Ástþór mjög víðsýnn maður og heill.
Ótrúlegt að maðurinn hafi ekki verið kjörinn forseti lýðveldisins á sínum tíma.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com