-...þú gætir komist í sjúklegar álnir/og alltaf átt í vasanum aur...-
Var að fá tölvupóst frá manni að nafni Ibrahim Issessay, kannski ekki í frásögur færandi, en hann er að bjóða mér ansi hreint freistandi tilboð. Þannig er að hann er frá Sierra Leone og erfði hvorki meira né minna en 17.200.000 dollara eftir föður sinn. Núna vill hann sem sagt koma þessu í ávöxtun í landi þar sem ríkir stöðugt ástand og þar sem lýðræði er í hávegum haft.......og viti menn, hann vill að ég hjálpi honum við þetta gegn því að ég fái 15% hlut í þessum peningum. Ja það held ég að maður sé kominn í góð mál. Nú getur maður loksins sest í helgan stein og lifað góðu lífi það sem eftir er. Þakka þér Ibrahim fyrir að treysta mér fyrir þessu verkefni og ég mun ekki bregðast þér.
Ef það eru einhverjir fleiri sem vilja að ég geymi fyrir þá pening þá endilega hafið samband.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home