miðvikudagur, nóvember 13, 2002

-Svo miklu miklu meira-
SonyEricsson T300

Mynd: Steingrímur Rúnar Guðmundsson

Við félagarnir í vinnunni vorum að prófa nýjan síma frá SonyEricsson sem var að koma í sölu. Síminn er með litaskjá og ýmsum skemmtilegum möguleikum. Honum fylgir lítil myndavél sem fest er neðan á símann sem gerir manni kleift að taka hinar ágætustu myndir sem síðan er hægt að senda sem viðhengi í tölvupóst. Svo sannarlega jólagjöfin í ár.
....hljómaði þetta nokkuð eins og söluræða?

Á heimasíðu Denna má sjá aðra mynd úr sama síma, en þá mynd tók ég einmitt af Denna....allt saman mjög skemmtilegt. Enda er þetta ekki bara spurning um eitthvert tæki, heldur svo miklu miklu meira.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com