-Basl í Basel-
Hljómar soldið eins og nafn á Tinnabók. En það er allavega ljóst að Meistaradeildin kláraðist í kvöld, óvenju snemma þetta árið. Nú er spurning hvað maður tekur sér fyrir hendur á þriðjudags- og miðvikudagskvöldum í vetur. Maður fer kannski að glugga í bækur, það er aldrei að vita. Svo er ég nú reyndar að nafninu til meðlimur í hljómsveit, maður fer kannski að sinna henni betur....hvur veit.
Annars skemmti ég mér konunglega við að horfa á sjónvarpsstöðina Omega í kvöld, þegar staðan var sem verst. Þar voru þeir að ræða m.a. um að við ættum ekki að nota orðið samkynhneigð af því að það orð er aldrei notað í biblíunni. Samkynhneigð átti s.s. að vera eitthvað orðskrípi sem seinni tíma menn fundu upp til að fegra syndina og gera hana "eðlilega" eins og þeir orðuðu þetta. Og svo gerðu þeir bara gys að öllu saman, sögðu að þetta væri eitt af orðunum sem Davíð Oddsson hefði átt að slá leiftursnöggt út úr orðabókinni nýju eins og hann gerði í Spaugstofuþættinum á laugardaginn, hahahahaha. Alltaf gaman að hlusta á þennan skemmtilega málflutning. Orð dagsins er því kynvilla.
Svo voru þeir að færa rök fyrir því af hverju fólk ætti að láta þá fá peninga til að halda áfram að sjónvarpa og voru í því sambandi að bera sig saman við Stöð 2. "Fyrst fólk getur borgað sjö þúsund krónur fyrir áskrift að Stöð 2 þá ættu þeir alveg að geta greitt sömu upphæð til að hægt sé að boða fagnaindið (fagnaðarerindið. innsk. höf.) til þrjátíu og þriggja landa" Munurinn er bara sá að Stöð 2 er þó að sjónvarpa einhverri dagskrá en eru ekki með Sigurð G. Guðjónsson og Jón Ólafsson allan sólarhringinn í útsendingu að biðja um meiri pening svo hægt sé að reka sjónvarpsstöð sem sýnir bara tvo menn biðja um pening til að hægt sé að reka sjónvarpsstöðina.
En allavega, Omega rokkar en ekki Liverpool.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home