-Föstudagur til fjár-
Í gær var föstudagur. Á föstudögum ætti maður að öllu eðlilegu að fá sér bjór, hrynja í það og fara í bæinn. En gerði ég eitthvað af þessu í gær? Nei, ég fór hins vegar á hljónstrængu (þýð. hljómsveitaræfingu) hvar prófaður var nýr gítarleikari. Til að gera langa sögu stutta þá reyndist þessi gítarmaður, sem ku heita Ómar, bara býsna góður og sammæltumst við drengirnir um það að haldin skyldi önnur æfing fyrr frekar en síðar. Þá er þessi hljómsveit loksins að komast á koppinn....vonandi. Enda hefur bandið gengið í gegnum miklar þrengingar við að koma saman hóp góðra hljóðfæraleikara. Ég byrjaði í þessari hljómsveit í vor og á þeim tíma hefur verið skipt einu sinni um söngkonu, tvisvar um gítarleikara og einn hljómborðsleikari hefur byrjað og hætt í bandinu. Það eru s.s. ég og Kristján bassaleikari sem erum eftir af upphaflega hópnum. Við erum svona eins og Gummi Jóns og Stebbi Hilmars eða Sigga og Grétar.....já eða gaurarnir tveir í Foreigner sem ég man ekki hvað heita......allavega, you get the picture.
En að öðru, einu sinni var ég í hljómsveit sem hét Mímir, sem breyttist síðan í Funkmaster 2000, og meðlimir þessarar hljómsveitar hétu (og heita ennþá) Sverrir, Kristján, Ómar og Hannes. Sverrir (sem er ég) spilaði á trommur, Kristján spilaði á bassa, Ómar á gítar og Hannes spilaði á hljómborð.
Í dag er ég í hljómsveit, sem ber reyndar ekki nafn ennþá, og meðlimir þessarar hljómsveitar heita Sverrir, Kristján og Ómar. Sverrir (sem er ég) spila á trommur, Kristján (sem er ekki sami Kristján og í gamla bandinu) spilar á bassa og Ómar (sem er ekki sami Ómar og í gamla bandinu) spilar á gítar. Ég er farinn að halda það að það sé einhver að reyna að segja mér að ég eigi bara að vera í hljómsveit með mönnum sem bera þessi nöfn og spila á þessi ákveðnu hljóðfæri. Þess vegna hef ég tekið þá ákvörðun að auglýsa eftir manni sem spilar á hljómborð og heitir Hannes. Þið Hannesar sem eruð þarna úti, mér er sama hvort þið getið eitthvað eða ekki hafið bara samband og við mössum þetta.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home