-Ert þú í akademíunni?-
Jói félagi minn var að velta upp þeirri áleitnu spurningu, Jói veltir upp mörgum áleitnum spurningum, um það hverjir það eru sem eiga sæti í íslensku sjónvarps- og kvikmyndaakademíunni. Minn fór og leitaði sér upplýsinga um þetta mál og komst að sjokkerandi niðurstöðu....eða allavega niðurstöðu. Hér að neðan er úrdráttur úr lögum þessarar miklu akademíu.
2. KJÖRSKRÁ
2.1. Á kjörskrá eru meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Rétt að aðild að Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni hafa þeir er sannanlega hafa unnið að tveimur kvikmynda- og/eða sjónvarpsverkefnum í einum eftirtalinna flokka.
Svo kemur löng upptalning á hinum ýmsu starfsstéttum kvikmyndaiðnaðarins allt frá gripli (held að þetta sé rétt beyging á orðinu gripill) til leikstjóra og handritshöfundar.
Með kvikmynda- eða sjónvarpsverkefnum er átt við kvikmyndir sem hafa verið sýndar opinberlega í kvikmyndahúsi í a.m.k. sjö daga samfleytt og sjónvarpsefni sem birst hefur á viðurkenndri sjónvarpsstöð og fellur undir þá flokka sem tilnefnt er í.
Ætli Omega falli undir það að vera viðurkennd sjónvarpsstöð? Þeir allavega senda til 33 landa....reyndar skilst mér að áhorfið sé einna mest í Færeyjum. Það er kannski ekki nóg til að fá viðurkenningu akademíunnar sem sjónvarpsstöð.
En Jói ég vona að þú sért einhvers vísari þó að þetta sé líklega leiðinlegasta blogg sem skrifað hefur verið.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home