þriðjudagur, nóvember 05, 2002

-Hátíðardagur 2.hluti-
Það er allt að gerast í dag. Ekki nóg með það að ég hafi byrjað að blogga heldur er besta hljómsveit í heimi, Dave Matthews Band, að gefa út bæði geisladisk og dvd disk. Þetta eru tónleikadiskar sem voru teknir upp í fyrrasumar í Boulder Colorado. En það er bara einn hængur á gjöf Njarðar. Þar sem þessi hljómsveit er ekkert sérlega vinsæl í Evrópu þá veit ég ekkert hvort eða þá hvenær diskarnir koma út hér á landi. Þaraf leiðandi þarf ég að treysta á ættingja mína vestan hafs til að senda mér eintak af þessum diskum.
Annars verður þetta líklega komið á netið áður en dagurinn er liðinn.....sennilega er þetta bara komið á netið nú þegar.
Hey! ég ætla að fara og tékka á því.
Góðar stundir þangað til næst.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com