-Voðaleg læti eru þetta-
Mér finnst fólk ekki almennt vera að átta sig á því að maður er algjör nýgræðingur í þessu dóti sem heitir blogg. Ég er nánast eins og Hómer þegar kemur að tölvugutli ("press any key to continue, where´s the any key?") en samt eru menn að biðja mig um að búa til tengla á hitt og þetta og setja út á hluti eins og hvaða lit ég er með á commentinu. Ég ætla bara að biðja menn um að halda hestum sínum og leyfa þessu að koma bara með kalda vatninu.
En annars tek ég fagnandi öllum hugmyndum sem geta bætt þennan litla vef og ég mun bera allar þær hugmyndir undir pródúsentin minn hann Denna sem fær svo að vinna úr hlutunum.
Þó get ég glatt bæði Kristján kontrabassa og Gumma Jóh með því að tenglarnir eru komnir upp og virðast bara virka helv...vel þó svo ég hafi sett þá upp sjálfur.
Lifi internetið!!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home