fimmtudagur, nóvember 07, 2002

-Snilld-
Ég rifjaði upp kynni við gamlan kunningja í gær, nánar tiltekið snilldardiskinn Automatic for the people með REM. Þessi diskur á einmitt tíu ára afmæli um þessar mundir og ég leyfi mér að fullyrða að þetta sé besti diskur tíunda áratugarins. Nú rísa eflaust einhverjir upp á afturlappirnar og hrópa "Sverrir pereat", en ég stend fastur á þessari skoðun minni.
Árið er s.s. 1992 og á meðan Kurt Cobain, Eddie Vedder og hvað allir þessir Seattle gaurar heita voru að búa til tónlist með hráum rafmagnsgítörum og öskrum þá koma drengirnir frá Athens í Georgíufylki með þessa lágstemmdu og nánast acoustísku plötu sem tekur allt hitt dótið í nefið.....2 times!!!!
Ef þið hafið tíma aflögu í dag þá mæli ég með því að þið stingið þessum disk í spilarann og njótið eyrnakonfekts af bestu sort.

Með kveðju
Sverrir Þór, tónlistarrýnir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com