mánudagur, nóvember 11, 2002

-Misrétti-
Íslendingar virðast vera að vakna til vitundar um jafnrétti fólks af ólíkum kynþáttum. Jói félagi minn fer mikinn í skrifum um meinta kynþáttafordóma íslensku sjónvarps- og kvikmyndaakademíunnar þar sem minnihlutahópar riðu ekki feitum hesti frá Edduverðlaununum í gær.
Jón Ólafsson, píanóleikari og tónlistarsnillingur, sem einmitt vann til verðlauna í gær, er með hugann við hinar ýmsu birtingarmyndir kynþáttafordóma. T.d. af hverju byrjar hvítur alltaf í skák? Af hverju eru hvítu nóturnar á hljómborði miklu fleiri en þær svörtu? Það þarf t.d. 16 SVARTAR sextándupartanótur til að vinna sömu vinnu og ein HVÍT heilnóta!
Ebony and ivory living in perfect harmony on my piano keyboard my ass!!!! McCartney vissi greinilega ekkert um hvað hann var að tala, enda hvítur maður sem hefur ekki þurft að þola það mótlæti sem svarti maðurinn hefur þurft að þola......og þar að auki hefur Stevie Wonder ekki verið nema skugginn af sjálfum sér eftir að hann söng þetta lag með bítlinum.....og það er örugglega hvíta manninum að kenna.
En nú er mál að linni.
Let´s kick racism out of football!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com