-Hvaða rugl er þetta?-
Nú held ég að menn séu orðnir uppiskroppa með efni til að verðlauna. Var að lesa á mbl.is að Let it be með Bítlunum var valið, og takið nú vel eftir, besta næstbesta lag sögunnar!!!! Hvaða rugl er það? Er einhver ánægður með að fá svona verðlaun? Nú er Let it be snilldarlag og reyndar flest lögin á þessum lista en komm on. Hverjum er svo boðið á verðlaunaathöfnina? Öllum helstu næstbestu tónlistarmönnunum? Þarna verða þá líklega Art Garfunkel, LaToya Jackson, Gary Barlow og Geir Ólafsson svo einhverjir séu nefndir.
Annars er fyndið að lesa hvaða lög það voru sem héldu næst bestu lögunum frá toppnum. Lagið Wand´rin star með Lee Marvin hélt ekki bara Let it be frá toppnum heldur líka I want you back með The Jacksons. Man einhver eftir þessu lagi? Ekki? Nei ég hélt ekki, en hlýtur að vera magnað lag. Það verður mitt næsta verk að dánlóda þessu lagi og mun ég fella dóm um það á næstunni....fylgist með.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home