föstudagur, nóvember 15, 2002

-Annáll-
Nú sit ég með bjór í annarri hendi og lyklaborðið í hinni og er að hlusta á afrakstur dánlóds liðinnar viku. Nýji DMB diskurinn fær hæstu einkunn, bara góð lög á þessum disk og frábærlega flutt í þokkabót (ekki af Þokkabót, enda hljómsveitin löngu hætt) og allir eru bara sælir og glaðir. Nema kannski Pferdinn, "þetta er örugglega rosalega vel spilað og allir að leggja sig 100% fram, en ég bara fíla þetta ekki", svona menn verða náttúrulega bara stimplaðir skrýtnir.....kannski ekki af mér en alveg örugglega af samfélaginu.
Nú er ég að drekka Carlsberg sem kemur örugglega flestum sem þekkja mig spánskt fyrir sjónir þar sem ég hef löngum sagt að menn drekki Heineken og pissi Carlsberg. Reyndar á Carlsberg heiður skilinn fyrir að styðja við bakið á Liverpool....en var sá stuðningur nægur til að fleyta liðinu áfram í Meistaradeildinni? Engan veginn, og því spurning hvort ekki sé rétt að skipta um sponsor.

En fyrst maður er farinn að tala um bjór þá held ég að það sé ekki úr vegi að leyfa Homer J. Simpson að eiga lokaorðin í þessum pistli.

Internet! Is that thing still around?

Ah, beer, my one weakness. My Achille's heel, if you will.

In America, first you get the sugar, then you get the power, then you get the women!.....ég ætla að leyfa félögum mínum að botna þessa setningu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com