miðvikudagur, nóvember 20, 2002

-Dagar fjárfestinga-
Núna síðustu daga hef ég verið duglegur að fjárfesta í hinum ýmsu hlutum. Á mánudaginn tryggði ég mér miða á Coldplay í höllinni þann 19.des og það í stúku. Svo síðast í gær ákvað ég loksins að næla mér í stafrænt breiðvarp frá Símanum sem væri bara hið bezta mál ef flestar stöðvarnar hefðu ekki dottið út seint í gærkvöldi. Reyndar eru menn ennþá að prófa sig áfram með búnaðinn þannig að menn mega búast við þessu segja kollegar mínir hjá Símanum. Með stafrænum útsendingum eiga myndgæðin að batna segja sérfræðingarnir, en ég er búinn að átta mig á því hvernig þeir leika þennan leik. Málið er nefnilega það að hinar "hliðrænu" (analog) stöðvarnar verða bara óskýrari en þær voru. Þannig virðist stafræna myndin bara vera miklu betri. Þetta var allavega málið hjá mér, reyndar gæti vandamálið verið falið í tengingunum, en þangað til annað kemur í ljós þá ætla ég að trúa þeirri útskýringu sem ég bjó til.
Svo er einhver fítus í þessu sem býður uppá að frysta myndina á skjánum. En er það gert svo fólk geti hlaupið á klóstið (klósettið) og komið svo aftur og haldið áfram þar sem frá var horfið? Tja þeir sem hafa hugsanlega ætlað að nýta sér þetta hafa þá misst heilmikinn gæðatíma (quality time) fyrir framan kassann, því myndin heldur auðvitað bara áfram þó að maður "frysti" myndina. En annars er þetta örugglega stórsniðugur fítus fyrir þá sem nauðsynlega þurfa að frysta eitthvað golden moment (gullið augnablik) í sjónvarpssögunni.
Eitt að lokum. Nú er Omega komið með samkeppni....loksins segja margir, því ein stöð á stafræna breiðvarpinu er einmitt kristileg sjónvarpsstöð. Þeir eru líka með kristilega matreiðsluþætti, kristilega þolfimiþætti og örugglega eitthvað fleira bitastætt sem ég á eftir að verða vitni að. En það er eitt sem þeir hafa ekki...og munu væntanlega aldrei hafa en það er hin eiginlega heilaga þrenning, sem eru Laugi Laufdal, Guðmundur whatshisname og síðast en ekki síst Eirík sjónvarpsstjóra. Það er grunnurinn að góðri kristilegri sjónvarpsstöð.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com