mánudagur, nóvember 18, 2002

-Ja hérna hér-
Rakst á þessa fyrirsögn í íþróttadálki mbl.is:

Blix segir árangur hafa náðst á fyrsta fundinum í Írak

Þetta er sem sagt orðin ný íþróttagrein, vopnaleit. Blix og félagar skipta sér þá væntanlega í nokkur lið og þeir sem finna flest gereyðingarvopn á sem skemmstum tíma vinna. Þetta er þá væntanlega fyrsta alvörumótið eftir að vopnaleit var leyfð aftur í Írak eftir margra ára bann. Eða kannski er þetta frekar vopnaleitasýning, sennilega er ekki búið að leyfa keppnishald ennþá í Írak....enda greinin mjög ung á þessum slóðum. Ég hlakka allavega til þess tíma þegar keppt verður í þessu hér á landi. Er búinn að vera að æfa mig undanfarið. Lét pabba fela haglarann og er svo búinn að ráfa um alla íbúð að leita að honum, búinn að kíkja undir öll borð, inn í alla skápa en enn sem komið er ekkert fundið. Hef lúmskan grun um að eitthvað leynist í bílskúrnum en faðir minn, sem merkilegt nokk er með upphafsstafina í for- og eftirnafni S og H ( er það tilviljun eða hvað?), hefur meinað mér aðgang að skúrnum þrátt fyrir miklar samningaviðræður.
Já, vopnaleit er sko ekki fyrir aukvisa.

En eins og nú er í tízku, þá ætla ég að klára þetta með tilvitnun.

"cause fish should know, stay down in the sea...."
...og þá er bara að skjóta á það úr hvaða lagi þetta textabrot er. Glæsileg verðlaun í boði.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com