-Halló heimur!!!!-
Nú er fokið í flest ef ekki öll skjól. Einhverra hluta vegna kemst ég ekki inn á msn og hef ekki komist núna undanfarnar mínútur og ég er brjálaður. Allir aðrir í kringum mig komast þarna inn og því ekki hægt að kenna tölvukerfinu um. Held að hotmail drengirnir hafi einfaldlega lokað mínum aðgangi að spjallinu. Ef svo er þá er þetta gróft mannréttindabrot enda verið að traðka á mínum sjálfsagða rétti til tjáningar. En ég hef ekki setið aðgerðarlaus hérna í þessari einangrun heldur er ég þegar búinn að senda harðorða kvörtun á hotmail.com og þeir drengirnir ætla víst að taka sér sólarhringsfrest til að afgreiða þessa kvörtun. Ef úrlausnin verður ekki fullnægjandi þá er næsta skref að skjóta þessu til mannréttindadómstóls Evrópu.
En ég er allavega brjálaður.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home