-Helgin-
Þar sem síðasta helgi var algjörlega djamm- og bjórlaus þá gat ekki annað gengið en að tekið væri örlítið á hlutunum um þessa helgi. Föstudagskvöldið byrjaði reyndar á einhverri hrikalegustu hljómsveitaræfingu fyrr og síðar....held að við höfum náð að renna í gegnum eitt eða tvö lög á þeim rúmum tveimur tímum sem við eyddum í þetta. Eftir þessa hörmung var ákveðið að slá kvöldinu upp í kæruleysi og ég skellti mér í bæinn ásamt Heyzu og Unu vinkonu hennar. Fórum á Sólon og Hverfisbarinn og var bara hin þokkalegasta stemning í gangi þar.
Gærkvöldið fór svo líka bara í vitleysu, ég og Pferdinn fengum okkur bjór yfir einkennilegasta fótboltaleik sem ég hef séð lengi. Barcelona og Real Madrid áttust s.s. við og eins og flestir vita eru frekar litlir kærleikar á milli þessara liða. Greyið Luis Figo fékk meira en ársbirgðir af ávöxtum ýmiskonar í hausinn og heilmikið af tómum flöskum sem hann getur eflaust fengið ágætis pening fyrir ef hann skilar þeim í endurvinnsluna. Reyndar skilst mér að Figo sé svo sem ekki á fæðuskeri staddur þannig að það er vonandi að hann noti peningana sem fengust úr þessari flöskusöfnun til góðra verka. En ávextir hljóta að vaxa á trjánum á Spáni slíkt var magnið af þeim á vellinum að nægt hefði til að fæða heila fjölskyldu í Afríku í heilan mánuð, eða kosta skólagöngu eins drengs frá Indlandi í heilt ár (er þetta ekki alltaf sagt þegar Rauði krossinn er að safna einhverju), en allavega Spánverjar eru gjafmilt fólk og eins og Eiríkur sjónvarpsstjóri segir: "Guð elskar glaðan gjafara"
Svo endaði kvöldið bara í almennri hélun í bænum þar sem mér tókst að rekast á gamla vinkonu mína sem ég hafði ekki séð í langan tíma og týna Pferdinum sem væntanlega hefur tekið örlí beil eins og hann myndi orða það.
.....nú klukkan er að verða fjögur, þátturinn er að verða búinn í dag. Við verðum hérna aftur á svipuðum tíma á morgun en þangað til góðar stundir og passið ykkur á myrkrinu.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home